Saga AGR

Bestun og ráðgjöf ehf. var stofnað vorið 1998 í framhaldi af rannsóknaverkefni sem var styrkt af Rannís og unnið við Véla- og iðnaðarverkfræðiskor Háskóla Íslands í tengslum við bestun í sjávarútvegi. Mímisbrunnur átti einnig rætur sínar að rekja til Háskóla Íslands en fyrirtækið var stofnað í tengslum við þróun á bestunarhugbúnaði fyrir dreifikerfi.

AGR ehf varð til með samruna Bestunar og ráðgjafar ehf. og Mímisbrunns ehf. árið 2000.

Fljótlega eftir sameininguna gerði AGR ehf. samning við Húsasmiðjuna og Aðföng um sameiginlega þróun á Innkaupa- og birgðstýringarkerfinu AGR Innkaup.  Þróun á fyrstu útgáfu kerfisins lauk árið 2002 og síðan þá hafa fjölmörg fyrirtæki fjárfest í kerfinu, þar á meðal mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.

Frá árinu 2002 hefur AGR ehf. sérhæft sig í lausnum til hagræðingar í rekstri aðfangakeðjunnar í kjölfar góðra viðbragða markaðarins á megin lausn fyrirtækisins, AGR Innkaup.  Auk þess hefur AGR unnið að þróun á framleiðsluskipulagskerfi í samstarfi við Actavis.

Árið 2005 stofnaði AGR ehf. dótturfyrirtæki í Danmörku sem ber heitið AGR Nordic A/S sem sér um markaðssetningu lausna AGR á Norðurlöndum.  Framkvæmdastjóri þess er Kim Petersen.

Árið 2006 stofnaði AGR ehf. dótturfyrirtækið AGR-UK Ltd. sem hefur aðstetur í London.  Hálfdan Gunnarsson var upphaflega framkvæmdastjóri AGR-UK Ltd en síðar tók John Croucher við framkvæmdastjórahlutverkinu.

    Viðskiptavinir okkar eru

       

image clockNæstu skref
    
    Um AGR
    Forgreining
    Hafðu samband