Um AGR

 

Saga AGR nær aftur til ársins 1997, en megin lausn fyrir tækisins, AGR Innkaup, hefur verið þróuð frá árinu 2002. Lausnin er til þess að lágmarka kostnað við innkaup og birgðarhald. Þetta er gert með því að finna bestu mögulegu birgðarsamsetningu fyrirtækja, minnka vöruvantanir og að minnka tímafreka vinnu við innkaupastýringu. Lausnin er í notkun hjá yfir 60 heildsölum, smásölum og framleiðslufyrirtækjum í 12 löndum, en fyrirtækið sjálft hefur starfsemi í Bretlandi, Danmörku og á Íslandi.

AGR hefur mikla þekkingu á Microsoft tækninni og hefur náð stöðu Gull-Samstarfsaðila Microsoft, sem staðfestir að AGR stenst mestu kröfur um þekkingu á Microsoft tækni. AGR hefur ennfremur fengið megin lausn sína, AGR Innkaup vottaða sérstaklega af Microsoft. Þessi sterku tengsl tryggja okkur aðgang að nýjustu tækni sem völ er á við hugbúnaðarþróun í dag og gera okkur kleift að þróa launs okkar við bestu mögulegu aðstæður.


              

    Viðskiptavinir okkar eru

       

image clockNæstu skref
    
    Um AGR
    Forgreining
    Hafðu samband