AGR Innkaup

AGR ehf. sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri aðfangakeðjunnar. Megin lausn fyrirtækisins, AGR Innkaup, er innkaupa- og birgðastýringarkerfi sem stuðlar að:

 Lægri birgðum

 Nákvæmari söluspám

 Færri vöntunum

 Umtalsverðum vinnusparnaði

AGR Innkaup hentar öllum fyrirtækjum með birgðahald. Kerfið notar þekktar aðferðir birgðastjórnunar auk öflugra spáaðferða til að reikna innkaupatillögur sem lágmarka birgða- og flutningskostnað. Frekari upplýsingar fást hér.


Notendavænt viðmót og sjálfvirkni í innkaupaferlinu

AGR Innkaup er afar notendavænt og einfalt í notkun. Grafískt viðmót gerir innkaupastjórum kleift að skoða söguleg gögn og söluspár á einfaldan hátt og auðvelt er að lagfæra gögn, t.d. til að taka út óeðlilega sölutoppa. Hægt er að keyra handvirkar eða sjálfvirkar innkaupatillögur sem byggja á öflugum algrímum til útreiknings á hagkvæmasta innkaupamagni miðað við fyrirliggjandi forsendur.

The overall increase in accurate, realtime information on all aspects of purchasing, inventory and sales gives us complete visibility into the supply chain and has had a positive impact on our management decision makin. We now make much more accurate forecasting decisions that have led to reducing inventory holding while maintaining high customer service levels."- Ashley Cooper, Framkvæmdastjóri, Labelon UK ltd. www.labelon.co.uk   

AGR Innkaup má keyra samhliða hvaða viðskiptakerfi sem er, en við erum nú þegar að vinna með kerfum svo sem Microsoft Dynamix AX, NAV, Concorde, Agresso og AS/400. Kerfið getur lækkað birgðarhaldskostnað fyrirtækja töluvert samhliða hækkunar á þjónustustigi. Viðskptavinir okkar hafa þar að auki náð fram mikilli hagræðinug við innkaupaferlið og náð fram töluverðum vinnusparnaði. Þetta eru nokkur dæmi um þá kosti sem viðskiptavinir okkar nefna við AGR Innkaup:


 Birgðalækkun um 35%

Um 85% færri vantanir

 Um 80% vinnusparnaður vegna sjálfvirkra innkaupaferla

 Aukin yfirsýn með notendavænu viðmóti

 Lækkaður flutningskostnaður

 Minni fjárbinding í rekstrinum

    Viðskiptavinir okkar eru

       

image clockNæstu skref
    
    Um AGR
    Forgreining
    Hafðu samband